Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 19. mars 2023 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Leikmenn United voru ótrúlega lélegir"
Mynd: Getty Images

Roy Keane fyrrum leikmaður Manchester United var ekki sáttur með frammistöðu sinna manna í sigrinum gegn Fulham í enska bikarnum í dag.


United lenti undir í leiknum en kom til baka á ótrúlegan hátt eftir að Fulham missti tvo leikmenn af velli og Marco Silva stjóri liðsins fékk einnig að líta rauða spjaldið.

„Í bikarnum er aðal atriðið að komast í næstu umferð en samt held ég að stjórinn sé mjög svekktur með það sem hann sá. Auvðitað eyðilögðu leikmenn Fulham fyrir sér sjálir en leikmenn United voru ótrúlega lélegir. Það er betra að vera heppinn en góður stundum, þeir hafa fundið leiðir í síðustu leikjum en Fulham eyðilagði fyrir sjálfum sér í dag," sagði Keane.

Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir á Wembley helgina 22.-23. apríl þar sem Manchester United mætir Brighton.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner