19.04.17 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Glen Johnson framlengir við Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Glen Johnson er búinn að skrifa undir árs framlengingu við Stoke City.
Johnson, sem á 54 A-landsleiki að baki fyrir England, verður 33 ára í ágúst og styttist því í að skórnir fari á hilluna.

„Þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig, um leið og félagið sagðist vilja framlengja þá var ég búinn að skrifa undir,\" sagði Johnson við vefsíðu Stoke.
„Ég hef virkilega notið mín hjá Stoke undanfarin ár og hlakka til að bjóða fram krafta mína á næsta tímabili.\"
Johnson vann Úrvalsdeildina með Chelsea á sínum tíma og hefur hann leikið yfir 300 úrvalsdeildarleiki á ferlinum.