Fotbolti.net
19.04.21 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu mörkin: Kolbeinn sigraði gömlu liðsfélagana

Sjáðu mörkin: Kolbeinn sigraði gömlu liðsfélagana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kolbeinn Sigþórsson hefur farið vel af stað á nýju tímabili í Svíþjóð. Hann var í byrjunarliði Gautaborgar í dag og skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri gegn gömlu liðsfélögum sínum í AIK.
Kolbeini gekk ekki vel að skora á tíma sínum hjá AIK þó hann hafi verið mikilvægur í spili liðsins.

Í dag setti hann tvö mörk í fyrri hálfleik, það fyrra eftir gott hlaup innfyrir vörnina og það seinna eftir flotta takta innan vítateigs.

Mörkin má sjá hér fyrir neðan en Gautaborg er með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.