Fotbolti.net
19.04.22 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Framarar fá danskan Kongómann (Staðfest)

Framarar fá danskan Kongómann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fram er búið að krækja í miðvörð sem einnig getur spilað sem djúpur miðjumaður.

Sá heitir Delphin Tshiembe og Delph, eins og hann er kallaður, er fæddur árið 1991 í Zaire. Hann er með danskan og kongóskan ríkisborgarétt.
„Delph er veraldarvanur leikmaður og frá því að hann byrjaði ferilinn sinn í Kaupmannahöfn hefur hann spilað í Skotlandi með Hamilton Academical, í Færeyjum með HB Tórshavn og einnig með ýmsum liðum í Danmörku á borð við Horsens og Vendsyssel," segir í tilkynningu Fram. Síðast lék hann með Vendsyssel.

Delph er þriðji leikmaðurinn sem Fram krækir í á síðustu dögum. Fyrir höfðu þeir Jannik Pohl og Hosine Bility gengið í raðir félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.