19.05.14 - 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Antonio Conte verður áfram hjá Juventus (Staðfest)

Antonio Conte

Mynd: Twitter

Antonio Conte

Mynd: Twitter
Antonio Conte, þjálfari Juventus á Ítalíu, verður áfram þjálfari liðsins en félagið greindi frá þessu í kvöld.
Juventus varð í þriðja sinn í röð ítalskur meistari á dögunum en það taldi sem titill númer 30 hjá ítalska liðinu.
Conte tók við liðinu tímabilið 2011-2012 og gerði í kjölfarið liðið að meisturum en talað var um eftir þetta tímabil að hann myndi stíga til hliðar og horfa á aðra möguleika.
Ítalska félagið greindi þó frá því á Twitter-síðu sinni í kvöld að Conte verður þjálfari liðsins á næstu leiktíð, stuðningsmönnum til mikillar hamingju.