Fotbolti.net
19.05.14 - 18:12
Alexander Freyr Tamimi

Luis Enrique tekinn við Barcelona (Staðfest)

Luis Enrique er tekinn við Barcelona.

Luis Enrique er tekinn við Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Luis Enrique hefur verið ráðinn nýr þjálfari Barcelona, en þetta staðfesti félagið há heimasíðu sinni rétt í þessu. Hann gerir tveggja ára samning við Katalóníurisana.

Enrique tekur við Barcelona af Gerardo \"Tata\" Martino, sem var rekinn eftir tímabilið í kjölfar þess að liðinu tókst ekki að vinna neinn titil.
Enrique þekkir vel til hjá Barcelona, en hann var leikmaður liðsins á árunum 1998-2004 og spilaði 207 deildarleiki og skoraði 73 mörk.

Hann byrjaði svo þjálfaraferilinn sem þjálfari B-liðs Barcelona og stýrði liðinu á árunum 2008-2011, áður en hann tók við Roma í Seríu A.

Þann 8. júní 2013 tók hann svo við liði Celta Vigo, en hann hætti með liðið á dögunum og er nú tekinn við Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.