19.05.14 - 14:04
Brynjar Ingi Erluson
Ryan Giggs leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ryan Giggs, knattspyrnustjóri og leikmaður Manchester United á Englandi, hefur lagt skóna á hilluna á sínu 41. aldursári. Þetta staðfesti hann eftir að hann var ráðinn aðstoðarþjálfari Louis van Gaal hjá United í dag.
Hann kom inn á sem varamaður fyrir Thomas Lawrence í síðasta heimaleik United á tímabilinu, gegn Hull á síðustu leiktíð, og var það síðasti leikur hans fyrir félagið.

Það eru fáir sem eiga jafn sigursælan feril og Ryan Giggs. Þessi velski vængmaður fór í knattspyrnuskóla Manchester City áður en Manchester United rændi honum en á þeim tíma hét hann Ryan Wilson en breytti síðar nafni sínu í eftirnafn móður sinnar, Giggs.
Sir Alex Ferguson, sem var á þeim tímanum knattspyrnustjóri Man Utd, náði sjálfur í Giggs og bankaði uppá heima hjá honum til þess að bjóða honum tveggja ára samning hjá akademíu félagsins og þar hófst ævintýrið.
29. nóvember 1990 skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Man Utd en hann lék þó ekki sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið fyrr en 2. mars gegn Everton á sömu leiktíð í 2-0 tapi.
Hans fyrsta mark kom svo í 1-0 sigri á Manchester City undir lok tímabilsins en þó var lengi í umræðunni að Colin Hendry hefði komið knettinum í eigið net.
Hann fór að spila reglulega með liðinu tímabilið á eftir en var samt í fræga \'92 árgangnum sem vann FA bikar unglingaliða. Menn á borð við David Beckham, Nicky Butt, Paul Scholes, Gary Neville og Phil Neville voru allir í því liði.
Ferguson verndaði alltaf Giggs á unglingsárunum. Hann bannaði drengnum að fara í viðtal til 20 ára aldurs en vinstri vængmaðurinn sprakk út tímabilið 1992-1993 er liðið vann ensku deildina í fyrsta sinn í 26 ár.
Maðurinn vann gríðarlegt magn af titlum. Þrettán sinnum tókst honum að fagna sigri í ensku úrvalsdeildinni á meðan hann vann FA-bikarinn fjórum sinnum og enska deildabikarinn fjórum sinnum.
Samfélagsskjöldinn vann hann níu sinnum og Meistaradeild Evrópu tvívegis. HM félagsliða tók hann þá tvívegis og Ofurbikar Evrópu einu sinni. Magnaður árangur það.
Hann á mörg met en hann er leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, sem og með flestar stoðsendingar en nákvæm talning hófst árið 2002. Hann er eini leikmaðurinn sem hefur spilað 22 tímabil í röð og eini leikmaðurinn sem hefur skorað 21 tímabil í röð.
Hann var einu sinni valinn besti leikmaður tímabilsins en leikmenn völdu hann besta leikmann deildarinnar árið 2009. Þá var hann valinn besti ungi leikmaður deildarinnar tvö tímabil í röð, fyrstu tímabil hans með Man Utd.
Hann var sex sinnum í liði ársins í ensku úrvalsdeildinni en það er endalaust hægt að telja met velska leikmannsins.
Giggs fór að læra þjálfun ásamt því að spila fótbolta en David Moyes, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, gaf honum tækifærið er hann tók við liðinu fyrir tímabilið og var Giggs aðstoðarþjálfari.
Moyes var látinn taka poka sinn fyrir nokkrum vikum síðan og fékk Giggs tækifærið til þess að stýra liðinu út leiktíðina í það minnsta.
Hann hefur nú verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Louis van Gaal og hver veit nema hann taki svo við af Hollendingnum eftir nokkur ár.