Fotbolti.net
19.05.14 - 19:11
Daníel Freyr Jónsson

Ter Stegen til Barcelona og Pinto fer (Staðfest)

Marc-André Ter Stegen.

Marc-André Ter Stegen.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýski markvörðurinn Marc-André Ter Stegen mun ganga í raðir Barcelona eins og fastlega hefur verið búist við undanfarna mánuði.

Ter Stegen, sem er 22 ára gamall, kemur frá Gladbach í heimalandi sínu. Þar kom hann upp í gegnum unglingstarf félagsins og lék 108 leiki í Bundesligunni. Hann kemur til Barcelona á frjálsri sölu.
Á sama tíma og Barcelona tilkynnti um komu Ter Stegen var það staðfest að hinn 38 ára gamli Jose Manuel Pinto muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út um næstu mánaðamót.

Það er því ljóst að Ter Stegen verður aðalmarkvörður Barcelona á næstu leiktíð þar sem Victor Valdes hefur þegar tilkynnt um að hann fari frá félaginu í sumar.

Heimild: Heimasíða Barcelona

Jose Pinto yfirgefur Barcelona.

Jose Pinto yfirgefur Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.