Fotbolti.net
19.05.14 - 13:03
Alexander Freyr Tamimi

Van Gaal tekur við Manchester United (Staðfest)

Ryan Giggs aðstoðarþjálfari

Louis van Gaal.

Louis van Gaal.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur staðfest að Louis van Gaal sé tekinn við sem knattspyrnustjóri félagsins.
Manchester United staðfesti einnig að Ryan Giggs var ráðinn aðstoðarmaður Van Gaal, en Hollendingurinn skrifaði undir þriggja ára samning á Old Trafford.

Van Gaal er 62 ára gamall og hefur orðið deildar- og bikarmeistari í þremur löndum og þá hefur hann unnið Meistaradeildina, UEFA bikarinn, ofurbikar Evrópu í tvígang og ofurbikarana í Hollandi og Þýskalandi.

Louis van Gaal hóf þjálfaraferilinn sem aðstoðarþjálfari hjá AZ Alkmaar og svo Ajax á árunum 1986-1991 og gerðist svo aðalþjálfari Ajax frá 1991-1997. Þá tók hann við Barcelona og stýrði liðinu til ársins 2000, þar til hann tók við hollenska landsliðinu næstu tvö árin. Hann tók svo aftur við Barcelona í eitt ár áður en hann sneri aftur til AZ Alkmaar. Þar var hann við stjórnvölinn frá 2005 til 2009 og þjálfaði þar Grétar Rafn Steinsson.

Van Gaal tók við Bayern Munchen árið 2009 og stýrði liðinu til 2011, og eftir EM 2012 tók hann svo við hollenska landsliðinu og mun stýra því fram yfir HM 2014. Í kjölfarið tekur hann við liði United.

Ed Woodward, framkvæmdastjóri United, hafði þetta að segja: ,,Í Louis Van Gaal höfum við ráðið einn besta knattspyrnustjóra heims. Hann hefur afrekað ótrúlega hluti til þessa og Old Trafford býður honum upp á verðugt verkefni til að skrifa nýja kafla í sögu Manchester United.\"
Giggs verður aðstoðarmaður Van Gaal.

Giggs verður aðstoðarmaður Van Gaal.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.