Fotbolti.net
19.05.16 - 20:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Zaccheroni rekinn frá Beijing Guoan eftir níu leiki (Staðfest)

Zaccheroni stýrði japanska landsliðinu í fjögur ár.

Zaccheroni stýrði japanska landsliðinu í fjögur ár.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski þjálfarinn Alberto Zaccheroni hefur verið rekinn frá kínverska félaginu Beijing Guoan eftir aðeins níu leiki við stjórnvölinn.

Félaginu hefur aðeins tekist að vinna tvo leiki af níu undir stjórn Ítalans og er með níu stig eftir níu umferðir.
Mælirinn fylltist í gær þegar liðið tapaði fyrir Stephane Mbia, Ezequiel Lavezzi, Gervinho og félögum í Hebei sem eru í fjórða sæti deildarinnar.

Zaccheroni gerði garðinn frægan við stjórnvölinn hjá AC Milan þegar hann vann Ítalíumeistaratitilinn 1999. Auk þess hefur hann stýrt Lazio, Inter, Juventus og nú síðast japanska landsliðinu.

Stjörnuleikmaður Beijing Guoan er Brasilíumaðurinn Renato Augusto, sem lék fyrir Bayer Leverkusen í fjögur ár frá 2008 til 2012.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.