Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 19. maí 2019 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rúnar Alex valinn maður leiksins af stuðningsmönnum Dijon
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson fékk fjögur mörk á sig er Dijon tapaði fyrir PSG í franska boltanum.

PSG sýndi mikla yfirburði í leiknum og hefði Rúnar Alex mátt gera betur í einu markanna. Hann átti þó góðan leik og var valinn besti maður Dijon af stuðningsmönnum.

Rúnar hefur verið í harðri byrjunarliðsbaráttu við Bobby Allain á tímabilinu. Rúnar er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum og hefur gert góða hluti í efstu deild Frakklands.

Dijon er þó í mikilli fallhættu og þarf sigur gegn Toulouse í lokaumferðinni til að eiga möguleika á að bjarga sér frá falli.



Athugasemdir
banner
banner
banner