Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. maí 2021 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Álasund og Start töpuðu
Mynd: IK Start
Davíð Kristján Ólafsson var ónotaður varamaður er Álasund tapaði gegn Raufoss í norsku B-deildinni.

Álasund hríðféll úr efstu deild í fyrra og er komið með þrjú stig eftir tvær umferðir á nýju tímabili.

Þá töpuðu lærisveinar Jóhannesar Harðarsonar í IK Start heimaleik gegn Jerv.

Start tók forystuna tvisvar í fyrri hálfleik en í bæði skiptin tókst gestunum að jafna. Gestirnir skoruðu svo tvö í síðari hálfleik og sátu uppi sem sigurvegarar.

Start, sem féll með Álasundi í fyrra, er einnig með þrjú stig eftir sigur í fyrstu umferð.

Raufoss 4 - 2 Ålesund
0-1 S. Nordli ('14)
1-1 M. Ndiaye ('24)
1-2 S. Haugen ('33)
2-2 T. Haltvik ('41)
3-2 M. Ndiaye ('60)
4-2 M. Alm ('69)

Start 2 - 4 Jerv
1-0 M. Ramsland ('8)
1-1 D. Campos ('13)
2-1 M. Ramsland ('31)
2-2 D. Campos ('35)
2-3 E. Sandberg ('52)
2-4 A. Latifu ('58)
Athugasemdir
banner
banner
banner