fim 19. maí 2022 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ten Hag verður í stúkunni á sunnudag en mun ekkert skipta sér af
Mynd: Getty Images
Erik ten Hag verður viðstaddur leik Crystal Palace og Manchester United á sunnudag. Það er Melissa Reddy á Sky Sports sem greinir frá.

Ten Hag hefur verið ráðinn nýr stjóri United en hann mun ekki skipta sér af á sunnudag í lokaleik Ralph Rangnick við stjórnvölinn.

Hann mun heldur ekki koma að neinu leyti að undirbúningi United fyrir leikinn.

Mitchell van der Gaag verður einn af aðstoðarmönnum Ten Hag en beðið er eftir atvinnuleyfi fyrir hann á Englandi. Þá verður Steve McClaren einnig í teymi Ten Hag. McClaren var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson á árunum 1999-2001.

Leikur United gegn Palace er liður í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. United mun enda í 6. eða 7. sæti í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner