19.06.14 - 18:25
Magnús Már Einarsson
David Hockaday tekur við Leeds (Staðfest)

David Hockaday (til vinstri).

Mynd: Getty Images

David Hockaday (til vinstri).

Mynd: Getty Images
David Hockaday hefur verið ráðinn stjóri Leeds United en hann tekur við liðinu af Brian McDermott sem var rekinn á dögunum.
Hockaday var síðast stjóri Forest Green í ensku utandeildinni, fimmtu efstu deild á Englandi.

Hinn 56 ára gamli Hockaday lék á sínum tíma með Blackpool, Swindon, Hull, Stoke og Shrewsbury.
Hann var síðar í þjálfaraliði Watford, Leicester, Southampton og Cheltenham áður en hann tók við Forest Green árið 2009.
Hjá Leeds mun Hockaday starfa við hlið Benito Carbone sem var á dögunum ráðinn yfirmaður knattspyrnumála.

Heimild: Sky