Fotbolti.net
19.06.14 - 17:30
Magnús Már Einarsson

One Direction stjarna kaupir Doncaster (Staðfest)

Louis Tomlinson (til hægri).

Louis Tomlinson (til hægri).

Canon

Mynd: Getty Images

Louis Tomlinson, söngvari hljómsveitarinnar One Direction, hefur keypt Doncaster Rovers í ensku C-deildinni.

Tomlinson kaupir félagið ásamt John Ryan sem er mættur aftur til Doncaster eftir að hafa selt félagið í nóvember í fyrra.

Tomlinson og Ryan munu vera saman formenn hjá Doncaster en þeir eru báðir miklir stuðningsmenn félagsins.
Hinn 22 ára gamli Tomlinson spilaði leik með varaliði Doncaster á síðasta tímabili.

Ryan kom sjálfur inn á sem varamaður í leik með aðalliði Doncaster í utandeildinni árið 2003 en þá var hann 52 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.