Varnarmaðurinn Mats Hummels hefur gengið í raður Borussia Dortmund á nýjan leik eftir þriggja ára veru hjá Bayern München.
Hummels hefur verið í lykilhlutverki hjá Munchen síðustu tímabil en miklar endurnýjungar eru hjá liðinu. Hinn þrítugi Þjóðverji er uppalinn í Munchen en gengur nú á nýjan leik til Dortmund þar sem hann lék með liðinu tímabilin 2008 - 2016 við góðan orðstír.

Hummels lék 118 leiki fyrir Bayern en hann lék 309 leiki með Dortmund á sínum tíma.
Dortmund enduðu 2. sæti Bundesligunnar tveimur stigum á eftir Bayern München.
Mats 🔙 pic.twitter.com/L90XFy3Ry7
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) June 19, 2019
Athugasemdir