Roberto Moreno tekur við
Luis Enrique er hættur sem þjálfari spænska landsliðsins en aðstoðarmaður hans, Roberto Moreno, tekur við starfinu.
Enrique var þjálfari Spánar í tæpt ár en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum af persónulegum fjölskylduástæðum.
Ekki hefur verið opinberað hverjar fjölskylduástæðurnar eru en ljóst er að Enrique hefur látið af störfum. Spænska knattspyrnusambandið hefur boðað til fréttamannafundar síðar í dag.

Moreno hefur stýrt liðinu í síðustu leikjum en hann var aðstoðarmaður Enrique hjá Celta Vigo, Roma og Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er aðalþjálfari.
Spánverjar eru á toppi F-riðils í undankeppni EM en þeir hafa unnið alla fjóra leiki sína.
Athugasemdir