Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skorað úr tveimur vítaspyrnum á leiktíðinni en hefur klikkað á síðustu tveimur vítaspyrnum sínum.
Grímsi ræddi við Fótbolta.net í gær og var hann spurður hvort hann myndi taka næsta víti sem KA fengi.
Grímsi ræddi við Fótbolta.net í gær og var hann spurður hvort hann myndi taka næsta víti sem KA fengi.
„Nei, nei, nei, ég er ekki að fara gera það. Jonathan Hendrickx var vítaskytta áður en hann meiddist og ég hljóp í skarðið á meðan hann var fjarverandi," sagði Grímsi. Hann skoraði úr báðum spyrnunum gegn Leikni en klikkaði gegn Keflavík og Víkingi.
„Því miður þurfti ég að klúðra seinni tveimur. Hendrickx tekur bara vítin enda er hann besta skytta liðsins," sagði Grímsi.
Jonathan Hendricx meiddist í 2. umferð gegn KR en var kominn aftur í byrjunarliðið í síðasta leik gegn ÍA.
KA mætir Val í toppbaráttuslag á morgun.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir