Keflavík 1 - 0 Tindastóll
1-0 Kristrún Ýr Holm ('49 )
Rautt spjald: Aldís María Jóhannsdóttir, Tindastóll ('96)
1-0 Kristrún Ýr Holm ('49 )
Rautt spjald: Aldís María Jóhannsdóttir, Tindastóll ('96)
Sjöunda umferð Pepsi Max deildar kvenna hófst í dag með einum leik.
Tindastóll heimsótti Keflavík en heimakonur sigruðu leikinn með einu marki gegn engu.
Staðan var markalaus í hálfleik en Keflvíkingar komust yfir með marki frá Kristrúnu Ýr Holm eftir mikin darraðadans í vítateig Tindastóls. Í uppbótartíma fór Aldís María Jóhannsdóttir full seint í tæklingu og uppskar sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Eftir leikinn eru Keflvíkingar í 6. sæti með níu stig en Tindastóll á botni deildarinnar með fjögur stig.
Athugasemdir