Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. júní 2021 19:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo gerði lítið úr Gosens - Náði fram hefndum í dag
Mynd: EPA
Robin Gosens leikmaður Þýska landsliðsins spilar einnig með Atalanta á Ítalíu.

Eins og allir vita leikur hinn portúgalski Ronaldo með ítalska stórliðinu Juventus.

Gosens segir frá því í ævisögu sinni 'Dreams are worthwhile.' að hann hafi spurt Ronaldo eftir leik Juventus og Atalanta á leiktíðinni hvort hann vildi skipta á treyjum en Ronaldo hafi ekki litið til hans og sagt þvert nei.

Gosens skammaðist sín mikið eftir þetta augnablik og var lítill í sér.

Hann náði svo sannarlega fram hefndum í dag er Þýskaland vann 4-2 sigur á Portúgal á EM og Gosens átti stórkostlegan leik með eitt mark og tvær stoðsendingar.


Athugasemdir
banner
banner
banner