Ívar Orri Kristjánsson dómari stórleik Vals og Víkings í Bestu-deild karla í gærkvöldi, og hundtryggir aðstoðarmenn hans, skörtuðu nýjum búning í gærkvöldi.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 Víkingur R.
Besta-deildin hefur verið í löngu landsleikjahléi og sneri aftur með látum þegar fimm leikir fóru fram í gær.
Ívar Orri og félagar mættu til leiks í spánýjum gulum búningum, gulur litur sem hefur ekki sést áður.
Það var mál manna í stúkunni að þarna færi afar fagur búningur en svo er það bara þitt að dæma, þess vegna fylgja allar þessar myndir fréttinni.
Athugasemdir