Manchester City er að ganga frá kaupum á norska undrabarninu Sverre Nypan. Hann kemur til félagsins frá Rosenborg og er dýrasti leikmaður sem hefur verið seldur úr norsku úrvalsdeildinni; kaupverðið er um 15 milljónir evra.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður er talinn einn af efnilegustu leikmönnum heims. Nypan spilaði sinn fyrsta leik með Rosenborg árið 2022 og síðan þá verið fastamaður í liðinu.
Tipsbladet í Danmörku sóttist eftir viðbrögðum frá Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann, við þessum skiptum.
„Það er auðvitað risastórt að það sé verið að selja hann þangað," sagði Freyr.
„Hann er enn ungur en hefur spilað stórt hlutverk í sterku liði Rosenborg. Alfred Johansson, þjálfari liðsins, hefur gert vel í því að ná því besta úr ungu strákunum. Má þar líka nefna Marius Broholm sem er á leið til Lille."
Freyr segir að Nypan minni sig á íslenska landsliðsmanninn Ísak Bergmann Jóhannesson.
„Hann minnir mig mikið á Ísak Bergmann. Hann er leikmaður sem er með mikla orku og gott auga fyrir leiknum. Hann er mjög gáfaður og maður sér ekki að hann er bara 18 ára vegna þess að hann er svo þroskaður inn á vellinum."
Freyr segist ekki vilja setja of mikla pressu á Nypan en segir að hæfileikar hans séu augljósir því annars væri Man City ekki að kaupa hann.
Athugasemdir