Fotbolti.net
19.06.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Bandaríkjanna og Ástralíu: Áfall fyrir heimamenn

Byrjunarlið Bandaríkjanna og Ástralíu: Áfall fyrir heimamenn
Canon

Mynd: EPA

Bandaríkin hófu leik á heimavelli á HM af krafti með öruggum 4-1 sigri á Paragvæ. Það er hins vegar áfall fyrir liðið að stærsta stjarnan, Christian Pulisic, er meiddur og er ekki með gegn Ástralíu í kvöld.

Ricardo Pepi, leikmaður PSV, kemur inn í liðið í hans stað. Folarin Balogun, sem skoraði tvennu gegn Paragvæ, er á sínum stað í fremstu víglínu.
Ástralía vann 2-0 gegn Tyrklandi en markaskorararnir Connor Metcalfe og Nestory Irankunda setjast á bekkinn. Mathew Leckie og Nishan Velupillay koma inn í þeirra stað.

Bandaríkin: Reese; Freeman, Richards, Ream, Robinson; Adams, Tillman; Dest, McKennie, Pepi; Balogun

Ástralía: Beach; Italiano, Circati, Souttar, Burgess, Bos; Leckie, O’Neill, Okon-Engstler, Velupillay; Toure

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.