Fotbolti.net
19.06.26 - 16:00
Kári Snorrason

Svona gæti leið Englands í úrslitaleikinn litið út

Unnu Króatíu 4-2 á miðvikudaginn.

Unnu Króatíu 4-2 á miðvikudaginn.

Canon

Mynd: EPA

England fór vel af stað á heimsmeistaramótinu með 4-2 sigri á Króatíu. Úrslitin slökkva ekki í væntingum blóðheitra Englendinga sem og enskra fjölmiðla sem hafa tekið það saman hvernig hugsanleg leið liðsins í úrslitaleikinn gæti litið út.

Ef England vinnur riðilinn, eins og búist er við myndi það þýða að þeir mæta liði í þriðja sæti úr riðlum E/H/I/J/K í 32-liða úrslitum.

Ef gert er ráð fyrir að riðlakeppninni ljúki í samræmi við styrkleikaröðun gæti hvaða lið sem er af Fílabeinsströndinni, Sádi-Arabíu, Noregi, Alsír eða Kongó lent í því að mæta Englandi.

Noregur er eflaust sterkasta liðið af þessum fimm en ef Norðmenn ná öðru sæti í sínum riðli þá mætir England annað hvort Senegal eða Írak ef við gefum okkur það að Frakkar endi ekki í þriðja sæti í sama riðli.
Í 16-liða úrslitum gæti sigurvegari A-riðils beðið þeirra. Líklegast er að það verði gestgjafaþjóðin Mexíkó sem tæki á móti Englendingum á Azteca vellinum.

En ef þeir kæmust í gegnum þá þolraun yrði Brasilía mótherji þeirra í 8-liða úrslitum og Argentína yrði þá hugsanlegur mótherji í undanúrslitum.

Fari allt eftir bókinni og England kemst í úrslit mæta þeir Evrópumeisturum Spánar í úrslitaleiknum sjálfum. Liðin mættust í úrslitum EM fyrir tveimur árum þar sem Spánn fór með 2-1 sigur af hólmi.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Hressir Bretar.

Hressir Bretar.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.