Maðurinn sem fór í Liverpool en þoldi ekki Gerrard

El Hadji Diouf í leik gegn Liverpool sem leikmaður Blackburn.

Mynd: EPA

Hugarfarið var kannski ekki það besta hjá kauða.

Mynd: Twitter

Steven Gerrard er ein mesta goðsögn í sögu Liverpool.

Þegar Senegal steig inn á heimsmeistaramótið árið 2002 bjóst enginn við því að nýliðarnir yrðu ein stærsta saga keppninnar. Enn færri bjuggust við því að El Hadji Diouf, 21 árs framherji með ótrúlegt sjálfstraust, yrði eitt heitasta nafn heimsfótboltans aðeins nokkrum vikum síðar.
Senegal byrjaði mótið með látum þegar liðið lagði ríkjandi heimsmeistara Frakka að velli í opnunarleiknum en saga þeirra endaði ekki fyrr en í átta-liða úrslitum. Þótt Diouf hafi ekki skorað mark á mótinu var hann án efa stærsta stjarna liðsins.

Hann var hraður, óútreiknanlegur og óhræddur við að taka varnarmenn á. Á meðan liðsfélagar hans skoruðu mörkin var hann maðurinn sem skapaði fyrirsagnirnar. Frammistaðan vakti gríðarlega athygli. Áður en mótið var liðið hafði Liverpool tryggt sér þjónustu hans fyrir háa upphæð og margir töldu að félagið væri að fá einn mest spennandi unga leikmann heims. Það var ekki óalgengt á þeim tíma að sjá sérfræðinga spá því að Diouf gæti orðið ein af stóru stjörnum næsta áratugar.
Raunin varð þó allt önnur og hann náði aldrei að standast væntingarnar á Anfield. Mörkin komu sjaldan og samband hans við stuðningsmenn, andstæðinga og fjölmiðla varð sífellt stormasamara. Eftir því sem árin liðu varð hann þekktur fyrir umdeilda hegðun innan vallar sem utan. Hann var agressívur, hrækti á andstæðinga og lét dómara heyra það. Diouf hefur svo verið duglegur við að tala niður Steven Gerrard, eina mestu goðsögn í sögu Liverpool, á síðustu árum.
Í raun hefur Diouf notað hvert tækifærið á fætur öðru til að skjóta á Gerrard eftir tíma sinn hjá Liverpool og er óhætt að segja að vinsældir hans hjá enska úrvalsdeildarfélaginu hafi ekki aukist við það.
Gerrard sagði síðar í ævisögu sinni: „Diouf var sama um fótbolta og sama um Liverpool."
Ferill Diouf hjá Liverpool var stuttur, en hann spilaði svo með félögum á borð við Bolton, Sunderland, Blackburn og Leeds, en aldrei aftur varð hann sá leikmaður sem hann hafði verið sumarið 2002. Þrátt fyrir að hafa átt langan atvinnumannaferil tókst honum aldrei að festa sig í sessi meðal bestu framherja Evrópu eins og einhverjir höfðu gert vonir um eftir mótið í Suður-Kóreu og Japan. Líklega var hugarfar hans stærsta ástæðan fyrir því.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 14. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

TENGT EFNI
Heimsfrægir á HM en svo var lítið að frétta
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!