Leikmaður Man Utd fyrstu kaup Amorim?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ruben Amorim, nýr stjóri AC Milan, er sagður hafa áhuga á því að endurnýja kynnin við Manuel Ugarte. Frá þessu greinir Mirror.
Amorim var með Ugarte hjá sér hjá Manchester United og hafði áður unnið með honum hjá Sporting. Amorim var rekinn frá United í janúar á þessu ári.
Ugarte er úrúgvæskur landsliðsmaður sem var í aukahlutverki á Old Trafford á liðnu tímabili. Hann byrjaði einungis átta úrvalsdeildarleiki og er sagt að Michael Carrick hafi tilkynnt Ugarte að hann sé ekki hluti af framtíðarplönum hans.

Ugarte, sem er 25 ára miðjumaður, var fenginn til United frá PSG, kostaði um 42 milljónir punda, í lok sumargluggans 2024 eftir að Scott McTominay var seldur frá United til Napoli.