19.07.13 - 09:22
Daníel Freyr Jónsson
Alvaro Negredo orðinn leikmaður Man City (Staðfest)

Alvaro Negredo.

Mynd: Getty Images

Alvaro Negredo.

Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Alvaro Negredo er genginn í raðir Manchester City frá Sevilla. Kaupverðið er ekki gefið upp, en það er talið nema 22 milljónum punda og skrifaði hann undir fjögurra ára samning.
Hinn 27 ára gamli Negredo er annar leikmaðurinn sem fer frá Sevilla til City í sumar, en áður hafði vængmaðurinn Jesus Navas fetað sömu leið.
Þessi mikli markahrókur skoraði 25 mörk í La Liga á síðustu leiktíð. Það dugði honum þó einungis til að vera fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar.
Negredo kom upp í gegnum unglingastarf Real Madrid, en eftir fá tækifæri þar ákvað hann að söðla um og gekk í raðir Almeria árið 2007. Þar skoraði hann 32 mörk á tveimur tímabilinum áður en Sevilla gerði hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins árið 2009.
Er hann þriðju kaup City í sumar á eftir Navas og Fernandinho. Þá mun Stevan Jovetic skrifa undir hjá félaginu á allra næstu dögum.