19.07.13 - 16:10
Arnar Daði Arnarsson
Anton Ástvaldsson í Hött (Staðfest)
Breti á leiðinni á reynslu

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Varnarmaðurinn Anton Ástvaldsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Hött frá Gróttu. Anton gekk til liðs við Gróttu fyrir timabilið frá Hetti en hefur nú ákveðið að leika að nýju með uppeldisfélaginu.
Þetta er gríðarlegur liðstyrkur fyrir Hött sem eru í neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir 11 umferðir. Anton hefur leikið ellefu leiki með Gróttu í 2.deildinni í sumar.
Anton þekkir vel til í herbúðum Hattar en hann hefur allan sinn feril spilað með félaginu að undanskyldu einu ári þegar hann lék með Aftureldingu í 2.deildinni árið 2006.
Anton verður löglegur með Hetti á morgun, þegar liðið heimsækir Ægi heim í Þorlákshöfn í alvöru botnbaráttuslag.
Um helgina er væntanlegur leikmaður á reynslu til Hattar að nafni Conor Sellars, sem leikið hefur með unglingaliðum Man City og Middlesbrough.