19.07.13 - 14:55
Magnús Már Einarsson
Auðunn Blöndal í Létti (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Auðunn Blöndal, útvarpsmaður á FM 957, hefur ákveðið að ganga til liðs við Létti í fjórðu deildinni.
Ríkharð Óskar Guðnason, útvarpsmaður á FM 957, þjálfar Létti og annar starfsmaður útvarpsstöðvarinnar, Heiðar Austmann, er í vörn liðsins. Auðunn bætist nú í hóp starfsmanna FM sem leika með Létti.
,,Ég er búinn að vera í sumarfríi og þar sem að ég er ekki að ala upp þrjú börn heima hjá mér þá hafði ég ekkert betra að gera en að kíkja á fótboltaæfingar með Létti. Það gekk ljómandi vel og ef king Rikki G getur nýtt mig þá er hann með kallinn,\" sagði Auðunn við Fótbolta.net í dag.
Auðunn er framherji en hann lék síðast í deildarkeppni með Skallagrími í 2. deildinni árið 2001.
,,Ég er reynslumeiri núna og í betra formi. Maður er búinn að vera í bumbolta undanfarin ár og nú er að sjá hvernig fótboltaformið er,\" sagði Auðunn.
Auðunn verður ekki með Létti þegar liðið heimsækir Einherja frá Vopnafirði á morgun en hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Ými eftir viku.