Fotbolti.net
19.07.13 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson

Grindvíkingar semja við Serba (Staðfest)

Grindvíkingar semja við Serba (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindvíkingar hafa styrkt liðið sitt fyrir baráttuna í 1.deildinni því í dag fékk Serbinn, Igor Stanojevic leikheimild en hann kemur til liðsins frá heimalandinu.

Igor er miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið á vængnum. Hann lék síðast með OFK Beograd í efstu deild í Serbíu.
Grindvíkingar eru í efsta sæti 1.deildar með 23 stig. Þeir bæta Víking í toppslag í kvöld en Víkingar eru einu stigi á eftir Grindavík. Igor verður ekki löglegur með Grindavík í kvöld en leikheimild hans tekur gildi á morgun.

Eiríkur Leifsson framkvæmdastjóri Grindavíkur segir að félagið ætli ekki að styrkja sig meira, eins og staðan er.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.