19.07.13 - 08:40
Hafliði Breiðfjörð
Ian Campbell Hogg í Val (Staðfest)

Ian Hogg fagnar marki sínu fyrir Nýja Sjáland gegn El Salvador í maí í fyrra.

Mynd: Getty Images

Ian Campbell Hogg, landsliðsmaður frá Nýja Sjálandi, er genginn í raðir Vals og fær leikheimild með liðinu á morgun.
Hogg er 23 ára gamall og kemur frá Wellington Phoenix í heimalandi sínu.
Hann hefur tvisvar spilað á Ólympíuleikunum fyrir Nýja Sjáland, fyrst í Peking árið 2008 og svo í London í fyrra. Hann hefur verið að spila með landsliði Nýja Sjálands í undankeppni HM 2014.
Hogg er vinstri bakvörður eða vinstri kantmaður, 178 cm á hæð. Hann á að baki sex A-landsleiki fyrir Nýja Sjáland og hefur skorað í þeim eitt mark.
Hann fór með liði Auckland City á Heimsmeistaramót félagsliða árið 2009 í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum og var með Lionel Messi í liði mótsins sem fjölmiðlar völdu.
Í byrjun ágúst í fyrra gekk hann til liðs við Portland Timbers í bandarísku atvinnumannadeildinni en var leystur undan samningi þremur mánuðum síðar án þess að spila leik. Hann kom svo til Wellington Pheonix í janúar.
Einn leikmaður er farinn frá Val í félagaskiptaglugganum sem er opinn út mánuðinn, Björgólfur Takefusa hefur rift samningi sínum við félagið eins og við sögðum frá í gærkvöldi.

Heimild: Wikipedia