19.07.13 - 17:30
Arnar Daði Arnarsson
Kristinn Þór í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Kristinn Þór í leik með KF.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kristinn Þór í leik með KF.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sóknarmaðurinn, Kristinn Þór Rósbergsson hefur verið lánaður til Dalvíks/Reyni frá Þór út tímabilið. Kristinn Þór var á láni hjá KF fyrri hluta sumars en hefur nú verið lánaður í 2.deildina.
Kristinn er kominn með leikheimild með Dalvík/Reynir og er því löglegur með liðinu gegn Reyni S. í kvöld. Dalvík/Reynir er í hörku baráttu í 2.deildinni um að tryggja sér sæti í 1.deildinni og mun Kristinn tvímælalaust styrkja liðið.
Kristinn fékk lítinn séns hjá KF í sumar, spilaði fimm leiki í 1.deildinni og skoraði eitt mark. Hann er uppalinn í Þór og lék átta leiki með Þór í 1.deildinni í fyrra.
Kristinn fékk lítinn séns hjá KF í sumar, spilaði fimm leiki í 1.deildinni og skoraði eitt mark. Hann er uppalinn í Þór og lék átta leiki með Þór í 1.deildinni í fyrra.
