19.07.13 - 17:36
Daníel Freyr Jónsson
Stevan Jovetic til Manchester City (Staðfest)

Stevan Jovetic.

Mynd: Getty Images

Stevan Jovetic.

Mynd: Getty Images
Stevan Jovetic er genginn í raðir Manchester City og er hann fjórði leikmaðurinn sem félagið kaupir í sumar.
Svartfellingurinn kemur fra Fiorentina fyrir upphæð sem gæti endað í 25 milljónum punda og skrifaði hann undir fimm ára samning.

Jovetic skoraði alls 38 mörk í Serie A á þeim fimm árum sem hann lék með Fiorentina, en hann kom frá Partizan árið 2008.
Sem fyrr segir er þetta fjórðu kaup City í sumar. Fyrr í dag skrifaði Alvaro Negredo undir samning hjá City. Þá komu þeir Jesus Navas og Fernandinho til liðsins fyrir skömmu.