Fotbolti.net
19.07.13 - 07:30
Arnar Daði Arnarsson

Sveinn Aron í Reyni S. (Staðfest)

Sveinn Aron í leik með Val.

Sveinn Aron í leik með Val.

Canon

Mynd: Sport.is - Hilmar Þór

Sveinn Aron Sveinsson leikmaður Vals í handknattleik hefur gert félagsskipti úr KH í Reyni Sandgerði sem spilar í 2.deildinni. Sveinn hefur æft með liði Reyni síðustu daga og gerði loks félagsskipti í gær.
Hann er því löglegur með liðinu gegn Dalvík/Reyni í 2.deildinni í kvöld og samkvæmt heimildum Fótbolti.net er hann í leikmannahóp Reynis. Sandgerðingar eru í bullandi fallbaráttu og er þetta tvímælalaust gríðarlegur liðstyrkur fyrir liðið.

Sveinn er tvítugur örvfætur leikmaður sem getur spilað bæði sem bakvörður og framar á vellinum. Sveinn Aron á engan meistaraflokksleik að baki en hann lék með Fjölni upp yngri flokkana. Hann lék alla leiki Vals í N1-deild karla á síðasta ári og skoraði 40 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.