Fotbolti.net
19.07.13 - 19:06
Elvar Geir Magnússon

Vilanova hættur hjá Barcelona (Staðfest)

Luis Enrique talinn líklegur í stólinn

Vilanova hættur hjá Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona er í þjálfaraleit þar sem Tito Vilanova hefur látið af störfum af heilsufarsástæðum. Aðstoðarþjálfarinn Joan Francesc Ferrer Sicilia, kallaður Rubí, mun leysa hann af tímabundið.
Sandro Rosell, forseti Barcelona, segir að Vilanova þurfi að gangast undir frekari aðgerðir vegna krabbameins sem hélt honum lengi fjarverandi á síðasta tímabili.

Búist er við því að Börsungar ráði nýjan þjálfara í næstu viku.

Luis Enrique, fyrrum leikmaður Barcelona, hefur verið orðaður við starfið en hann er nú þjálfari Celta Vigo. Einnig hefur nafn Ernesto Valverde verið nefnt en hann tók nýlega við Athletic Bilbao.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.