19.07.14 - 23:21
Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason í Fylki (Staðfest)

Albert Brynjar í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albert Brynjar fer í appelsínugula búninginn að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Albert Brynjar í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason er genginn í raðir uppeldis félags síns, Fylkis á láni frá FH en þetta er staðfest á vef FH í kvöld. Hann ætti því að vera kominn með leikheimild þegar Fylkir mætir Stjörnunni í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Albert Brynjar lýsti því yfir við Fótbolta.net í vikunni að hann hefði áhuga á að yfirgefa toppliðið en hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu á þessari leiktíð.
Hann hefur spilað fimm leik í deild og einn í bikar og ekki náð að skora fyrir FH á þessu tímabili. Hann skoraði 3 mörk í 10 leikjum í fyrra. Hann lék í stuttan tíma með Val og Þór en hefur þess utan verið lengst af með Fylki. Hann hefur skorað 51 mark í 171 leikjum í deild og bikar.
Óvissa var með samningamál hans þar sem hann var ekki skráður með samning á vef KSÍ þrátt fyrir að FH hafi gefið út tilkynningu þess efnis í fyrra að búið væri að semja við leikmanninn. FH og Albert Brynjar sömdu því að nýju og FH hefur nú lánað leikmanninn Fylkis.
Þetta er missir fyrir FH sem einnig er að missa Kristján Gauta Emilsson frá sér til NEC í Hollandi og eftir stendur aðeins einn leikmaður sem spilar fremst á vellinum, markahrókurinn Atli Viðar Björnsson.
Tilkynning FH og Fylkis:
Knattspyrnudeild FH og knattspyrnudeild Fylkis hafa náð samkomulagi sín á milli er varðar félagaskipti Albert Brynjars Ingasonar.
Gamli samningurinn sem ekki var á skrá hjá KSÍ var gerður löglegur og sendur til KSÍ. Félögin tvö komust svo að samkomulagi um að lána Albert Brynjar yfir í Fylki út keppnistímabilið.
Bæði félögin sem og Albert Brynjar lýsa yfir mikilli ánægju með þessa niðurstöðu og vilja sjá að önnur félög fari að þessu fordæmi.
Virðingafyllst,
Ásgeir Ásgeirsson, formaður knattspyrnudeildar Fylkis
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH
Alber Brynjar Ingason, leikmaður FH