19.07.14 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Íris Dögg og Margrét Sveinsdóttir í FH (Staðfest)

Íris Dögg er gengin til liðs við FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íris Dögg er gengin til liðs við FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íris Dögg Gunnarsdóttir sem hefur verið besti markvörður Pepsi-deildar kvenna með Fylki í sumar hefur skipt um lið og spilar með FH út tímabilið.
Íris Dögg hélt hreinu í sex af átta fyrstu leikjum tímabilsins en missti á sætið til landsliðsmarkmannsins Þóru Bjargar Helgadóttur sem gekk til liðs við félagið eftir áralanga dvöl í atvinnumennsku erlendis.
Hún ákvað því að söðla um og er farin á láni til FH út tímabilið. FH er í 8. sæti deildarinnar eftir 9. umferðir með 8 stig. Guðrún Anna Atladóttir aðalmarkvörður FH hefur verið frá vegna meiðsla upp á síðkastið.
FH hefur fengið frekari liðsstyrk því Margrét Sveinsdóttir er komin aftur til félagsins eftir að hafa verið í Danmörku.
Þrír leikmenn eru því komnir í leikmannahópinn frá því félagaskiptaglugginn opnaði en Sandra Sif Magnúsdóttir kom frá Breiðabliki í vikunni.
FH mætir Aftureldingu í deildinni á þriðjudaginn.

Margrét Sveinsdóttir er komin til FH að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð