Fotbolti.net
19.07.14 - 14:20
Eyþór Ernir Oddsson
Ítalska deildin

Morata til Juventus (Staðfest)

Morata til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alvaro Morata, leikmaður Real Madrid, er formlega genginn í raðir Juventus á Ítalíu.
Juventus borga 20 milljónir evra (15,8 milljónir punda) fyrir Morata, sem skrifar undir fimm ára samning.

Heimasíða Juventus staðfestir þessar fregnir í dag en í samningnum segir meðal annars að Real Madrid sé frjálst að kaupa hann til baka sumarið 2016 eða 2017 fyrir 30 milljónir evra.

Hann hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá stórliði Real Madrid og hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal og Wolfsburg að undanförnu.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.