Fotbolti.net
19.07.20 - 14:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pearson rekinn frá Watford (Staðfest)

Búið spil.

Búið spil.

Canon

Mynd: Getty Images

Nigel Pearson hefur verið rekinn sem stjóri Watford, þetta hafa miðlar á Englandi staðfest. Craig Shakespeare, aðstoðarmanni Pearson, var einnig vikið frá störfum.

Watford á tvo leiki eftir af leiktíðinni og er þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Pearson tók við Watford þegar liðið var í botnsæti deildarinnar í desember.
Quique Sanchez Flores var stjóri Watford fyrri hluta leiktíðar en hann sigraði einungis einn leik fram í desember og þá var ákveðið að leita í reynsu Pearson sem hefur þjálfað m.a. Derby og Leicester á ferlinum.

Pearson stýrði Watford fjórum sinnum til sigurs í fyrstu sjö leikjunum sem stjóri liðsins en hallað hefur undan fæti þegar liðið hefur á stjóratíð hans.

Liðið á Arsenal og Manchester City í lokaumferðunum og berst við bæði Bournemouth og Aston Villa um að halda sætinu í deildinni.

Siðasti leikur Pearson sem stjóri var gegn West Ham þegar býflugurnar lentu 2-0 undir strax í byrjun leiks. Það var kornið sem fyllti mæli stjórnarmanna. Þeir Hayden Mullins og Graham Stack stýra liði Watford í lokaleikjunum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.