mán 19. júlí 2021 22:46
Brynjar Ingi Erluson
Brighton ætlar að fá Nat Phillips frá Liverpool
Nat Phillips
Nat Phillips
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton ætlar að fá Nat Phillips frá Liverpool en þetta kemur fram í Athletic.

Phillips er 24 ára gamall miðvörður en hann spilaði með aðalliði Liverpool á síðustu leiktíð eftir mikil meiðsli í herbúðum félagsins.

Hann hjálpaði Liverpool að ná Meistaradeildarsæti og skoraði eitt mark.

Samkvæmt Athletic er Brighton að íhuga að leggja fram tilboð í Phillips en liðið er að missa besta varnarmann sinn frá félaginu.

Ben White er að ganga í raðir Arsenal fyrir 50 milljónir punda og sér Brighton Phillips sem arftaka hans.

Phillips er opinn fyrir því að fara frá Liverpool ef hann fær ekki loforð um að spila með aðalliðinu á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner