Aaron Mooy og Moritz Jenz til Celtic (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Celtic var rétt í þessu að kynna tvo nýja leikmenn og hefur annar þeirra spilað í ensku úrvalsdeildinni.
Sá heitir Aaron Mooy og er 31 árs landsliðsmaður Ástralíu, 32 ára í september. Mooy er miðjumaður sem á 96 úrvalsdeildarleiki að baki fyrir Huddersfield og Brighton.
Þrátt fyrir að vera ástralskur hóf Mooy atvinnumannaferilinn í Skotlandi eftir að hafa komið upp í gegnum unglingaakademíu Bolton Wanderers. Hann flutti frá Ástralíu til Englands aðeins 16 ára til að reyna fyrir sér í akademíunni.
Undanfarin tvö ár hefur Mooy verið leikmaður Shanghai Port í Kína. Hann kemur á frjálsri sölu og skrifar undir eins árs samning við Celtic.
Hinn leikmaðurinn heitir Moritz Jenz og kemur á eins árs lánssamningi frá Lorient með kaupmöguleika.
Jenz er 23 ára þýskur miðvörður sem var keyptur til Frakklands í fyrra en mistókst að hrífa þjálfarateymi Lorient. Hann fór 16 ára gamall í unglingaakademíuna hjá Fulham og hóf atvinnumannaferilinn með Lausanne-Sport í Sviss.
Mooy og Jenz eru leikmenn númer 6 og 7 sem Celtic fær til liðs við sig í sumar eftir komu Jota, Cameron Carter-Vickers, Alexandro Bernabei, Daizen Maeda og Benjamin Siegrist.
Það verður áhugavert að fylgjast með baráttu Rangers og Celtic í skoska boltanum á næstu leiktíð og gengi liðanna í Evrópukeppnum. Celtic er ríkjandi Skotlandsmeistari á meðan Rangers komst óvænt í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og tapaði fyrir Eintracht Frankfurt í vítaspyrnukeppni.
