Fotbolti.net
19.07.22 - 16:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

De Ligt nýjasti leikmaður Bayern (Staðfest)

De Ligt nýjasti leikmaður Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FC Bayern München er búið að festa kaup á hollenska miðverðinum Matthijs de Ligt sem kemur úr röðum Juventus og kostar 80 milljónir evra.

De Ligt, sem var keyptur til Juve fyrir þremur árum og kostaði þá svipaðan pening, skrifar undir fimm ára samning við Þýskalandsmeistara Bayern.

De Ligt lék 117 leiki á þremur árum hjá Juventus þar sem hann varð Ítalíumeistari á sínu fyrsta tímabili og bikarmeistari í fyrra. Þessi varnarmaður verður 23 ára í ágúst en er hokinn reynslu þrátt fyrir ungan aldur þar sem hann á 38 landsleiki fyrir Holland.

Julian Nagelsmann þjálfari Bayern vildi fá háværan miðvörð í hópinn sem hefur bæði mikla sendingagetu og getur stjórnað vörninni. 

Juventus er að ganga frá kaupum á Gleison Bremer fyrir 47 milljónir til að fylla í skarðið sem De Ligt skilur eftir.

De Ligt er fjórði leikmaðurinn til að ganga til liðs við Bayern í sumar eftir Sadio Mane, Ryan Gravenberch og Noussair Mazraoui.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.