19.07.22 - 03:31
Brynjar Ingi Erluson
Hallbera leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Frá mínum dýpstu hjartarótum, TAKK FYRIR MIG"

Hallbera Guðný spilaði sinn síðasta leik á ferlinum gegn Frökkum í gærkvöldi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallbera vann deildina sex sinnum og bikarinn fjórum sinnum með Val

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Hallbera Guðný Gísladóttir hefur ákveðið að leggja skóna alfarið á hilluna. Hún tilkynnti um ákvörðun sína á Instagram í gærkvöldi, en í fyrstu var haldið að hún væri að hætta með landsliðinu og myndi halda áfram að spila með félagsliði, en svo er ekki. Hún staðfesti þetta við Fótbolta.net fyrr í kvöld.
Hallbera er 35 ára gömul og var að spila á sínu þriðja stórmóti með íslenska landsliðinu.
Hún byrjaði alla þrjá leiki landsliðsins á Evrópumótinu á Englandi, en liðið datt úr leik eftir 1-1 jafntefli gegn Frökkum í gær og tilkynnti Hallbera eftir leikinn að þetta væri hennar síðasti leikur.
Ekki var ljóst hvort þetta væri hennar allra síðasti leikur hennar með landsliðinu, en þegar Fótbolti.net náði tali af henni staðfesti hún að skórnir væru nú alfarið komnir upp í hillu.
Hallbera gekk til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Kalmar fyrir þetta tímabil, en fékk samningi sínum rift.
Hún spilaði einnig fyrir Piteå, Djurgården og AIK í Svíþjóð ásamt því að hafa tekið eitt tímabil með ítalska félaginu Torres.
Þessi öflugi vinstri bakvörður vann sjö Íslandsmeistaratitla, þar af sex með Val og einn með Breiðabliki. Þá vann hún bikarinn fjórum sinnum með Val og einu sinni með Blikum.
Hún er fædd og uppalin á Akranesi og hóf því feril sinn með ÍA áður en hún samdi við Val í desember árið 2005. Hún spilaði 341 leik í deild- og bikar og skoraði 73 mörk með ÍA, Val og Breiðabliki.
Hallbera spilaði 131 landsleik fyrir Ísland og skoraði 3 mörk en fyrsti landsleikur hennar kom gegn Póllandi á Algarve-mótinu í Portúgal í mars 2008.
„Óendanlega stolt af þessu liði. Ljúkum því miður keppni fyrr en við hefðum viljað en HM býður handan við hornið - það er ég viss um. Ísland mætir þar til leiks með unga leikmenn sem eiga glæsta framtíð og eru reynslunni ríkari, ásamt eldri og reyndari leikmönnum sem vísa veginn.
„Einhverntíman þarf allt að taka enda, en leikurinn í kvöld var minn síðasti á ferlinum. Frá mínum dýpstu hjartarótum TAKK FYRIR MIG," skrifaði Hallbera á Instagram.