Fotbolti.net
19.07.22 - 12:57
Brynjar Ingi Erluson

Man City lánar Steffen til Middlesbrough (Staðfest)

Zack Steffen

Zack Steffen

Canon

Mynd: EPA

Bandaríski markvörðurinn Zack Steffen er genginn til liðs við Middlesbrough á láni frá Manchester City. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Boro.
Steffen hefur gegnt hlutverki varamarkvarðar hjá Man City síðustu tvö tímabil þar sem hann spilaði aðeins tvo deildarleiki og var aðallega notaður í bikarkeppnunum.

Þessi 27 ára gamli Bandaríkjamaður spilaði gegn Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins á síðustu leiktíð og gerðist þar sekur um slæm mistök í öðru marki Liverpool er Sadio Mané pressaði hann og tæklaði boltann í netið.

Hann mun nú halda í B-deildina og spila með Middlesbrough á láni út tímabilið.

Man City fékk Stefan Ortega á frjálsri sölu frá þýska félaginu Arminia Bielefeld og verður hann varmarkvörður City og verður Scott Carson þriðji markvörður liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.