19.07.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Napoli fær Ostigård frá Brighton (Staðfest)

Leo Ostigård semur við Napoli

Mynd: EPA

Leo Ostigård semur við Napoli

Mynd: EPA
Napoli hefur gengið frá kaupum á norska varnarmanninum Leo Ostigård frá Brighton. Enska félagið staðfestir þetta á heimasíðu sinni.
Norski miðvörðurinn var á láni hjá Genoa frá Brighton seinni hluta síðustu leiktíðar og tókst að heilla önnur félög í Seríu A, þrátt fyrir að Genoa hafi fallið niður um deild.
Hann mun nú reyna fyrir sér hjá stærra félagi á Ítalíu en hann gerir fjögurra ára samning við Napoli.
Ostigård var spenntur fyrir því að spila í Meistaradeild Evrópu en hann kemur til með að kosta Napoli um átta milljónir evra.
Norðmaðurinn er 22 ára gamall og á að baki fimm landsleiki fyrir A-landslið Noregs.