Rangers kaupir Ben Davies af Liverpool (Staðfest)

Ben Davies spilaði helming leikja Sheffield United í Championship deildinni.

Mynd: Getty Images

Ben Davies spilaði helming leikja Sheffield United í Championship deildinni.

Mynd: Getty Images
Rangers er búið að ganga frá kaupum á enska varnarmanninum Ben Davies, sem er miðvörður að upplagi en getur einnig leikið sem vinstri bakvörður.
Davies skrifar undir fjögurra ára samning við Rangers og er sjötti leikmaðurinn til að ganga í raðir félagsins í sumar eftir mönnum á borð við Rabbi Matondo, Tom Lawrence og Malik Tillman.
Davies var lykilmaður í liði Preston North End í Championship deildinni í nokkur ár en var keyptur í neyð af Liverpool 1. febrúar 2021 vegna meiðslavandræða í varnarlínunni.
Jürgen Klopp nýtti sér aldrei krafta Davies, sem var svo lánaður til Sheffield United í fyrra og spilaði 23 leiki á síðustu leiktíð.
„Ég er mjög spenntur fyrir að ganga til liðs við Rangers og að taka næsta skrefið á ferlinum. Þetta er risastórt félag með háleit markmið og ég hlakka til," sagði Davies.
Kaupverðið er talið nema í kringum 4 milljónir punda en Liverpool borgaði aðeins eina milljón fyrir Davies í fyrra.
