Reading fær Hendrick og Long (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Championship félagið Reading er búið að krækja í tvo úrvalsdeildarleikmenn fyrir komandi átök á næstu leiktíð.
Jeff Hendrick kemur á lánssamningi frá Newcastle þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár. Þegar hann skipti til Newcastle sumarið 2020 voru AC Milan og Roma áhugasöm en hann valdi að halda áfram í ensku úrvalsdeildinni.
Hendrick er þrítugur og mikilvægur hlekkur í landsliði Írlands en hann fann aldrei taktinn hjá Newcastle. Hann fékk aðeins að spila fjóra leiki fyrir félagið á síðustu leiktíð eftir að hafa fengið 24 leiki ári fyrr. Hendrick á tvö ár eftir af samningi sínum við Newcastle.
Paul Ince, knattspyrnustjóri Reading, hefur miklar mætur á Hendrick sem er gífurlega duglegur miðjumaður og með góða sendingagetu. Ince er einnig hrifinn af kempunni Shane Long sem er búinn að skrifa undir samning.
Long er 35 ára gamall og snýr aftur til Reading eftir ellefu ára fjarveru. Hann er, líkt og Hendrick, írskur landsliðsmaður og var á tímabili einn af allra bestu leikmönnum liðsins.
Long skoraði tvisvar í 19 leikjum með Southampton á síðustu leiktíð en í heildina gerði Írinn 37 mörk í 245 leikjum fyrir félagið.
Long er ekki mikil markavél en þekktur fyrir að vera sterkur og einstaklega duglegur. Það er ekki af ástæðulausu sem hann á yfir 300 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni, þar af 50 fyrir Reading.


Mynd: Getty Images
