Udinese kaupir Masina frá Watford (Staðfest)

Masina spilaði 40 úrvalsdeildarleiki með Watford.

Mynd: Getty Images

Masina spilaði 40 úrvalsdeildarleiki með Watford.

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Udinese er búið að festa kaup á bakverðinum Adam Masina frá systurfélagi sínu Watford.
Pozzo fjölskyldan á bæði Udinese og Watford og skipta félögin leikmönnum reglulega sín á milli.
Udinese greiðir um fimm milljónir evra fyrir þennan vinstri bakvörð sem lék 90 leiki á fjórum árum hjá Watford.
Hinn 28 ára gamli Masina hóf ferilinn í ítalska boltanum og var fastamaður í byrjunarliði Bologna áður en hann var keyptur til Englands. Hann var með byrjunarliðssæti í U21 landsliði Ítalíu en tók aldrei stökkið og byrjaði að spila fyrir landslið Marokkó í fyrra.
Masina tekur stöðu hins hollenska Marvin Zegelaar í leikmannahópi Udinese. Til gamans má geta að Zegelaar gekk í raðir Udinese einmitt frá Watford fyrir nokkrum árum en er samningslaus í dag.
Þá var Udinese einnig að ganga frá kaupum á slóvakíska miðverðinum
Jaka Bijol frá CSKA Moskvu fyrir um 5 milljónir evra. Bijol skrifar undir fimm ára samning.
