Fotbolti.net
20.07.26 - 01:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Breki Baldurs á leið til Noregs

Breki Baldurs á leið til Noregs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki Baldursson, leikmaður Esbjerg í Danmörku, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til norska félagsins Åsane og mun spila með liðinu út tímabilið.

Breki er miðjumaður fæddur 2006. Hann er uppalinn Framari en var keyptur til Esbjerg sumarið 2024. Hann hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá danska liðinu sem er í næstefstu deild Danmerkur. Tímabilið í Danmörku er að hefjast en tímabilið í Noregi er u.þ.b. hálfnað.
Åsane er sem stendur í næstneðsta sæti norsku B-deildarinnar þegar 16 umferðir eru eftir. Næsti leikur liðsins verður gegn Egersund, þar sem Haraldur Árni Hróðmarsson er aðstoðarþjálfari, næsta sunnudag.

Breki á að baki 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands og þar af eru 14 af þeim fyrir U19. Hann var í vetur orðaður við heimkomu, var m.a. orðaður við Fram, FH og Val, en ekkert varð úr því að hann kæmi í Bestu deildina. Hann er samkvæmt Transfermarkt samningsbundinn Esbjerg til 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.