Fotbolti.net
19.07.26 - 20:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Minnir á leikinn gegn Englandi - „Messi mun vakna"

Minnir á leikinn gegn Englandi - „Messi mun vakna"
Canon

Mynd: EPA

Það er markalaust í hálfleik í úrslitaleiknum á HM milli Spánar og Argentínu.

Leikurinn hefur verið tíðindalítill en Spánn hefur verið með yfirhöndina. Argentína hefur ekki átt neina tilraun á markið og það hefur lítið sést til Lionel Messi.

Micah Richards, sérfærðingur á BBC, hefur ekki áhyggjur af argentíska liðinu sem vann endurkomusigur á Englandi í undanúrslitum.
„Þetta minnir mjög mikið á leik Englands og Argentínu. Argentínumenn voru mjög ákafir í fyrri hálfleik en hafa setið dýpra því Spánn hefur neytt þá til þess," sagði Richards.

„Lionel Messi hafði hægt um sig gegn Englandi líka. Hann mun vakna þegar leikurinn opnast í seinni hálfleik. Argentínumenn hafa verið ákafir og ekki leyft Spánverjum að komast á skrið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.